Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir
Fréttir


Fundur á Akureyri Prenta Tölvupóstur
16. mars 2010

auglysing-fundur-aey-19-03-2010.jpgBættar samgöngur - hvað er í veginum?
Háskólinn á Akureyri boðar til fundar um samgöngumál í húsnæði háskólans föstudaginn 19. mars kl. 13:00 - 16:00. Auglýsing með nánari upplýsingum um fundinn er að finna hér.
Markmiðið er að setja fókus á þennan mikilvæga málaflokk og tryggja umræðu um hann og ekki síður að vekja athygli á og umræður um hvernig honum er fyrirkomið í kerfinu. Erindi fundarins snerta alla sem á annað borð hafa áhuga á að ná fram samgöngubótum í landinu.

 
Skorað á yfirvöld og hlutaðeigandi sveitarstjórnir Prenta Tölvupóstur
02. mars 2010
vai000169.jpgÁ opnum fundi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar á fimmtudaginn var samþykkt ályktun þar sem skorað er á samgönguyfirvöld og hlutaðeigandi sveitarstjórnir að líta til heildarhagsmuna og stuðla að því að hefjast megi handa við þær samtals 20 km vegstyttingar sem kynntar hafa verið í Austur-Húnavatnssýslu og Skagafirði sem allra fyrst. Ályktunina má finna hér.


Lesa meira...
 
Áskorun til stjórnvalda um pólitíska stefnumótun til framtíðar! Prenta Tölvupóstur
12. febrúar 2010

hunaversfundur-10-10-2009-mynd-1-fyrir-vefinn.jpgFlutningasvið SVÞ hefur ítrekað reynt að vekja máls á þeim mikilvæga málaflokki sem samgöngur í landinu eru.

Stytting vegalengda á milli helstu staða bætir samkeppnisstöðu atvinnulífs á landsbyggðinni og eykur hagkvæmni og þægindi hins almenna vegfaranda.

Í kynningarbæklingi um núgildandi samgönguáætlun segir m.a. að stuðlað skuli að styttri ferðatíma með vegbótum svo sem styttingum. Þrátt fyrir þetta skýra markmið er lögum í landinu þannig fyrirkomið að engin trygging er fyrir því að mögulegar styttingar á grunnnetinu komi fyrir sjónir almennings.

Lesa meira...
 
Er lega hringvegarins einkamál sveitarfélaga? Prenta Tölvupóstur
29. janúar 2010
hnavallalei-40000.jpgFramtíðarlega hringvegarins um Húnavatnssýslur er hluti aðalskipulags sem sveitarfélögin Blönduósbær og Húnavatnshreppur munu kynna á almennum íbúafundi sem boðaður hefur verið í næstu viku. Til fundarins er boðað á vefsíðu Húnahornsins www.huni.is, sjá hér.

Tekið er fram í auglýsingunni að íbúar Blönduóssbæjar og Húnavatnshrepps séu hvattir til að mæta og hafa áhrif á það samfélag sem þeir búa í.


Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Endir >>

Úrslit 45 - 48 af 115
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg