|
19. mars 2010 |
Samgöngur eru dæmi um málaflokk er varðar okkur öll miklu. Að nýta sér samgöngur er órjúfanlegur hluti af daglegu lífi okkar flestra. Við ferðumst á milli heimilis og vinnu, við eigum samskipti við aðra, hvort sem það er í viðskipta- eða einkaerindum, við ferðumst um landið eða á milli landa. Atvinnulífið á hverjum stað, framleiðsla, verslun, ferðaþjónusta byggir tilvist sína á því að koma fólki eða vörum á milli staða. Allt fellur þetta undir samgöngur.
Greiðar og öruggar samgöngur skipta sköpum um samkeppnishæfni, hvort sem um er að ræða fyrirtæki á markaði eða þjóða í milli. Samgöngur innifela ekki bara vegakerfið, heldur falla þar undir hafnir landsins og flugvellir.
|
|
Lesa meira...
|