|
|
23. desember 2011 |
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti þann 14. desember sl. fjögurra og tólf ára samgönguáætlanir. Ráðherra sagði með þessum áætlunum væru lagðar nýjar áherslur, horft væri á landið sem eina heild við ákvörðun verkefna, lögð væri áhersla á verkefni á þeim landssvæðum sem í dag byggju við lakastar samgöngur og aukin áhersla yrði á almenningssamgöngur.
Tólf ára samgönguáætlun áranna 2011 til 2022 hefur að geyma stefnumótun en fjögurra ára áætlunin er verkefnaáætlun með fjárhagsramma fyrir árin 2011 til 2014. Tekjur og framlög til verkefna tólf ára samgönguáætlunar eru alls 296 milljarðar króna. Stærsta hluta þess fjármagns á að verja til vegamála eða 240 milljörðum. Sjá nánar hér.
|
|
|
16. desember 2011 |
Flutningar, innkaup, birgðir og vörudreifing
Opni háskólinn í HR býður upp á hagnýtt nám, samhliða vinnu, í flutninga- og vörustjórnun og fer námið af stað í þriðja sinn þann 23. jan. nk. Námið var m.a. sett upp í samráði við fagráð flutningasviðs SVÞ og þá fyrirtækja sem starfa á sviði flutninga. Kynningarfundur verður haldinn í Opna háskólanum þriðjudaginn 4. janúar nk. kl. 9:15 – 9:45. Skrá þarf sig með tölvupósti á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Umsögn nemanda:
"Námsbraut í flutninga - og vörustjórnun dýpkaði skilning minn á rekstri þar sem birgðir og vöruflæði skipta höfuð máli. Námið tengir saman flutninga, rekstur, markaðsmál, birgðastýringu og þjónustustjórnun á mjög einfaldan og skilningsríkan hátt. Sjálfur hef ég unnið við flutninga í 24 ár. Þegar ég hóf nám við námsbrautina hjá Opna Háskólanum komst ég að því hvað þekking mín var mjög einskorðuð við dagleg störf. Námið mun nýtast í starfi þar sem skilningur minn á snertiflötum fræðanna hefur aukist til muna. Mæli eindregið með þessu námi fyrir alla þá sem starfa á einhvern hátt við flutninga eða birgðastýringu." -
Bergvin Þórðarson, Öryggisstjóri / Verndarfulltrúi hafnarsvæðis Samskipa
|
|
Lesa meira...
|
|
|
21. október 2011 |
|
Hæstiréttur kvað í gær upp stefnumarkandi úrskurð um gengistryggingu fjármögnunarsamninga. Samkvæmt úrskurði Hæstaréttar eru fjármögnunarleigusamningar í raun og veru lán og því væri gengistrygging slíkra gerninga ólögleg.
Ljóst er að þessi niðurstaða mun leysa úr mikilli óvissu fyrir mjög marga atvinnurekendur sem hafa verðið í óvissu með réttarstöðu sína að þessu leyti allt frá hruni. Fjölmargir félagsmenn SVÞ hafa beðið eftir niðurstöðu í þessu máli í ofvæni, ekki síst þeir félagsmenn samtakanna sem eru innan Landssambands vörubifreiðaeigenda, en mjög margir í slíkum atvinnurekstri höfðu tekið lán sambærilegt því sem var til úrlausnar í þessu máli.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
30. ágúst 2011 |
Samstarfsvettvangur um samgöngumál boðaði til fundar þriðjudaginn 30. ágúst sl. í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 6 hæð. Fundurinn var vel sóttur af fulltrúum allra hagsmunaaðila.
Pétur Reimarsson, forstöðumaður stefnumótunar – og samskiptasviðs SA setti fundinn og bauð gesti velkomna.
Fyrra erindi morgunverðarfundarins var um Hvítbók ESB, stefnuyfirlýsingu í samgöngumálum til ársins 2050. Birna Hreiðarsdóttir, lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu, greindi frá Hvítbók ESB, stefnuyfirlýsingu Evrópusambandsins í samgöngumálum og sameiginlegri umsögn EFTA ríkjanna. Sagði hún Hvítbókina hafa verið útgefna í mars sl. og breið samstaða væri um innihald hennar þó nokkur áherslumunur væri á milli aðildarríkja. Glærur Birnu má nálgast hér.
Seinna erindi fundarins var um Solas Polar Code, breytingar á kröfum skipa sem sigla um heimskautasvæði, og gerði Ólafur Briem, Siglingastofnun, efninu góð skil. Tilefni þessa er að MSC nefnd IMO, sá vettvangur þar sem fjallað erum um öryggi skipa, hefur samþykkt að setja skuldbindandi reglur í stað leiðbeinandi um siglingar skipa á heimskautasvæðum. Glærur Ólafs má nálgast hér.
Samstarfsvettvang um samgöngumál skipa SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu, SA, SIF, LÍU OG SI.
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 5 - 8 af 115 |