Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir
Fréttir


Fundur SA og SVÞ um sameiningu samgöngustofnana Prenta Tölvupóstur
26. maí 2010
merki_sv_fyrir_augl.gifSamtök atvinnulífsins og SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu efna til opins upplýsingafundar um fyrirhugaða sameiningu samgöngustofnana þriðjudaginn 1. júní í Húsi atvinnulífsins kl. 8:30-10:00. Fundurinn fer fram á 6. hæð og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið undirbýr nú sameiningu stofnana sem heyra undir ráðuneytið. Á fundi SA og SVÞ munu Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri, Sigurður Örn Guðleifsson, lögfræðingur og Sigurður Helgason, ráðgjafi ráðuneytisins kynna fyrirhugaðar breytingar og áhrif þeirra á atvinnulifið.

sa_logo.gif
 
Fyrirhuguð sameining samgöngustofnana kynnt í Siglingaráði Prenta Tölvupóstur
21. maí 2010
merki_sv_fyrir_augl.gifRáðuneytisstjóri samgönguráðuneytisins Ragnhildur Hjaltadóttir kynnti fyrirhugaða sameiningu samgöngustofnana á fundi Siglingaráðs í gær 20. maí. Í máli hennar kom fram að gert væri ráð fyrir að engar breytingar yrðu á núverandi verkefnum stofnananna og að engum starfsmönnum yrði sagt upp.

Sameiningin væri fyrirhuguð á grundvelli þeirra stofnana sem sameina á og verkefnum þeirra.


Lesa meira...
 
Umsögn flutningasviðs um samgönguáætlun send Alþingi Prenta Tölvupóstur
21. maí 2010
vegur.jpgFlutningasvið SVÞ telur forgangsmál í samgöngumálaflokknum að sameinast um breytt verklag. Búa til líkan að faglegri ákvarðanatöku sem byggir á faglegum forsendum. Til að leggja áherslu á það  skilaði flutningasviðið tveimur umsögnum til Alþingis um fyrirliggjandi samgönguáætlun.

Annars vegar umsögn þar sem gerð er tillaga um að löggjafinn geri breytt verklag að forgangsmáli í samgönguáætlun til skamms tíma og tryggi þannig að þær stórframkvæmdir sem farið verði í byggi á faglegum forsendum. Hins vegar umsögn um þau meginatriði sem ástæða þykir til að benda á í fyrirliggjandi samgönguáætlun sem lögð er fram til bráðabirgða.

Lesa meira...
 
Kostnaðar- og ábatagreining forsenda stuðnings við veggjöld Prenta Tölvupóstur
14. maí 2010
tollhli.jpgFlutningasvið SVÞ brýnir löggjafann til að gera kröfu um faglegar forsendur við val á samgönguframkvæmdum og gerir það að forsendu fyrir stuðningi við veggjöld.

Unnið er að umsögn við samgönguáætlun sem nú liggur fyrir Alþingi. Í þeirri áætlun er frjálslega farið með hugmyndir um „notendagjöld“ .  Flutningasviðið varar mjög við því að það sé gert og hvetur löggjafann til að gera skýran greinarmun á hugmyndum um veggjöld fyrir dýr samgöngumannvirki og „notendagjöldum“ almennt í samgöngumálaflokknum.
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 37 - 40 af 115
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg