Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir
Fréttir


Fyrsta útskrift nemenda í flutningafræði Prenta Tölvupóstur
14. janúar 2011
afhending_viurkenningar.jpgFimmtudaginn 13. janúar 2011, var fyrsti hópur nemanda í flutningafræði Opna háskólans í HR útskrifaður, alls 21 nemandi. Flutningasvið SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu á stóran þátt í því að þetta nám varð að veruleika og var því ákveðið að afhenda verðlaun fyrir bestan námsárangur í nafni samtakanna. Sá nemandi sem hlaut verðlaunin heitir Birgir Gunnarsson og er starfsmaður Samskipa. Við óskum honum til hamingju með afburða námsárangur.


Lesa meira...
 
Nám í flutningafræði - skráning stendur yfir Prenta Tölvupóstur
03. desember 2010

opni_hsklinn_hr.jpgOpni háskólinn í HR býður upp á hagnýta námsbraut í flutningafræði (logistics).  Námið var m.a. sett upp í samráði við fagráð flutningasviðs  SVÞ og  í janúar 2011 mun fyrsti hópurinn útskrifast.  Nú þegar er farið að taka við skráningum í næstu námslotu sem hefst 2. febrúar nk. 

Námið sem er ígildi 36 ECTS eininga samanstendur af 6 námslotum.  Námið er hentugt að taka samhliða vinnu þar sem sem kennslutími verður á  mánudögum og miðvikudögum  frá kl.16:30 til 20:00. 

Lesa meira...
 
Viljayfirlýsing milli Tollstjórans í Reykjavík og SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu Prenta Tölvupóstur
30. september 2010

undirritun_viljayfirlsingar_vi_tollstjra.jpgum samstarf að einföldun og auknu öryggi aðfangakeðjunnar

Sá frábæri árangur náðist í dag fimmtudaginn 30. september 2010 að undirrituð var viljayfirlýsing milli Tollstjóraembættisins og SVÞ um samstarf að einföldun og auknu öryggi aðfangakeðjunnar

Markmið með viljayfirlýsingu tollyfirvalda og SVÞ er að stuðla að auknu öryggi í aðfangakeðjunni, auka einföldun, stöðlun og nútímavæðingu vinnu- og tölvuferla og vinna saman að því að koma í veg fyrir skipulagða glæpastarfsemi.

Lesa meira...
 
Ný skipulagslög samþykkt Prenta Tölvupóstur
24. september 2010

samgongur-samsett-mynd-17-03-2010.jpgNý skipulagslög hafa verið samþykkt á Alþingi, sjá hér http://www.althingi.is/altext/138/s/1499.html. Í lögunum er kveðið á um landsskipulagsstefnu í 10. gr. en í 4 mgr. segir að „Sveitarfélög skulu taka mið af landsskipulagsstefnu við gerð skipulagsáætlana... og telji sveitarstjórn að ekki beri að taka mið af samþykktri landsskipulagsstefnu við gerð skipulagsáætlunar skuli hún gera rökstudda grein fyrir því...“

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 21 - 24 af 115
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg