|
|
21. febrúar 2011 |
|
|
|
11. febrúar 2011 |
Með dómi Hæstaréttar sem kveðinn var upp 10. febrúar sl. var ökumaður vöruflutingabifreiðar sýknaður af ákæru fyrir brot á hvíldar- og aksturstímaákvæðum reglugerðar nr. 662/2006.
Hæstiréttur byggir niðurstöðu sína m.a. á því að ákærði hafi ekki verið inntur eftir því af hálfu Vegagerðarinnar, þegar rannsókn fór fram á ökumannskorti hans, hvort hann hefði með einhverjum hætti skráð eða gæti fært sönnur á að fráviks ákvæði 13. gr. gildandi reglugerðar um akstur- og hvíldartíma ökumanna sem á var byggt í málinu, ætti við um akstur hans.
Ökumaður var heldur ekki inntur eftir þessu atriði, hvorki við skýrslugjöf hjá lögreglu eða fyrir dómi. Ökumanni bar ekki skylda til að varðveita gögn vegna fráviksakstur í meira en 12 mánuði.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
11. febrúar 2011 |
Upplýsingafundur um stöðu og framtíð náms í flutningagreinum
Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands starfa um 7% vinnuafls á sviði samgöngu- og flutninga hér á landi. En hvað þarf til að vera forstjóri flutningafyrirtækis og hvað er að gerast í fræðslu- og menntunarmálum í greininni? Þessum spurningum og fleirum verður svarað og ljósi varpað á stöðu menntunar í flutningagreinum á upplýsingafundi sem haldinn verður föstudaginn 25. febrúar nk. Að fundinum standa SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu og Starfsgreinaráð samgöngu-, farartækja- og flutningagreina á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
18. janúar 2011 |
Samkvæmt nýlegum úrskurði Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, nú Innanríkisráðuneyti, er ökumönnum með aukin ökuréttindi ekki skylt að sækja endurmenntunarnámskeið að fimm árum liðnum frá endurnýjun ökuskírteinis til að halda atvinnuréttindum. Taldi ráðuneytið þessa kröfu skorta lagastoð og vera í andstöðu við 75. gr. stjórnarskrárinnar.
Uppruna þessa máls má rekja til þess hvort heimilt hafi verið að setja tákntöluna 95 fyrir gildistíma atvinnuréttinda ökumanns, þ.e: „95 atvinnuréttindi ökumanns“ í athugasemdarreit á bakhlið ökuskírteinis við endurnýjun þess. Samkvæmt úrskurðinum er það ólögmætt.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 17 - 20 af 115 |