Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða arrow Fréttir
Fréttir


Hvítbók í samgöngum 2011 Prenta Tölvupóstur
18. maí 2011
future-of-mobility-246.jpgÁ vordögum kom út Hvítbók í samgöngumálum en hennar hefur verið beðið síðan fyrir jól enda áætlaður útgáfudagur um miðjan desember.  Yfirskrift Hvítbókar er; Eitt evrópskt samgöngusvæði og miðar stefnumörkun að því takmarki sé náð.

Síðan Hvítbók í samgöngum var birt árið 2001 hefur miklu verið áorkað í samgöngumálum, s.s. eru markaðir opnari t.d. í flugi (The Single European Sky), á vegum og lestarkerfi að hluta, samgöngur eru öruggari og vinnuskilyrði víða bætt svo fátt eitt sé talið. 

Í Hvítbók nú hefur verið mótuð framtíðarstefna Evrópusambandsins í málaflokknum til ársins 2050, í lofti og á láði og legi. Lögð er áhersla á að góðar samgöngur séu grundvallaratriði fyrir hagkerfi og samfélög í heild sinni.  Mikil áhersla er lögð á að flutningastarfsemi sé lykilatriði fyrir hagkerfi Evrópu enda stuðli flutningar að vexti hagkerfisins og sköpun starfa.  10 milljónir manna starfa  við samgöngur innan sambandsins og skila 5% af vergri landsframleiðslu þess (GDP) svo skýrt er að málaflokkurinn er mikilvægur í því ljósi segir í Hvítbók.


Lesa meira...
 
Frá félagsfundi um lánamál Prenta Tölvupóstur
07. maí 2011
Félagsfundur um lánamál var haldinn fyrir Landssamband vörubifreiðaeigenda miðvikudaginn 4. maí sl. kl. 20:00.  Um 20 félagar í sambandinu mættu á fundinn og var mikil ánægja með þær framsögur sem fluttar voru og þær umræður sem áttu sér stað. 

Gestir fundarins voru Birgir Rúnólfsson, deildarstjóri í lánaeftirliti Íslandsbanka, Ingvar Stefánsson, forstöðumaður fjármögnunar Íslandsbanka og Páll G. Þórhallsson, lögfræðingur. 

Birgir fjallaði um leið í skuldaaðlögun, Beinu brautina, en aðilar þess samkomulags eru m.a. SA, efnahags- og viðskiparáðuneytið, fjármálaráðuneytið, bankar og önnur fjármálafyrirtæki.   
Ingvar tók við að honum loknum og  kynnti m.a. nýgenginn héraðsdóm um fjármögnunar-leigu.  Að loknum framsögum var opnað fyrir spurningar. 

Glærur með efni fundarins má nálgast hér.

 
Félagsfundur um lánamál Prenta Tölvupóstur
30. apríl 2011

lv.pngFélagsfundur um lánamál verður haldinn fyrir Landsamband vörubifreiðaeiganda miðvikudaginn 4. maí kl. 20:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 6. Hæð.

Gefið verður yfirlit yfir þessi mál í heild sinni og stöðu þeirra nú, þ.m.t. þeirra dómsmála sem gengið hafa og áhrif hafa á stöðu einstakra lána.

Gestir fundarins verða: Ingvar Stefánsson, forstöðumaður fjármögnunar Íslandsbanka og Birgir Rúnólfsson, deildarstjóri í lánaeftirliti Íslandsbanka.

Fundarstjóri: Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ

Skráning  hjá  Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða í síma 511 3000

 
Upplýsingafundur um stöðu menntunar í flutningsgreinum Prenta Tölvupóstur
01. mars 2011

a_vefur.jpgHaldinn var opinn upplýsingafundur um stöðu menntunar í flutningagreinum föstudaginn 25. febrúar sl. Fundinn skipulögðu fulltrúar SVÞ í  starfsgreinaráði samgöngu-, farartækja- og flutningsgreina ásamt SVÞ.  Meginmarkmið fundarins er að vekja áhuga á námi í flutningagreininni innan formlega skólakerfisins hér á landi og undirstrika mikilvægi þessarar faggreinar til framtíðar á Íslandi.  Fundurinn var vel sóttur en hann sátu um 60 einstaklingar, starfsfólk í greininni,  fulltrúar stjórnsýslunnar og skólakerfisins og áhugafólk um flutninga auk annarra. 

Fundinn setti Andrés Magnússon framkvæmdastjóri SVÞ.  Hann fjallaði um flutningagreinina og mikilvægi flutninga í heild sinni.  Þ.m.t. undirstrikaði hann mikilvægi menntunar í greininni svo hún hefði alla burði til að vaxa í takt við kröfur verslunar- og þjónustufyrirtækja.  Þau erindi sem á eftir fylgdu voru áhugaverð og vel framsett og vöktu miklar umræður í lok fundar. 

Fundarstjóri var Ólafur Finnbogason, Íslandspósti.

Glærur fyrirlesara má nálgast hér :
„Frá Brasilíu til Búðardals“
Auður Þórhallsdóttir fulltrúi SVÞ í starfsgreinaráði samgöngu-, farartækja- og flutningsgreina
Hvað þarf til að verða forstjóri flutningafyrirtækis?
Emil B. Karlsson forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar
Hvaða möguleikar eru í stöðunni?
Jón B. Stefánsson skólameistari Tækniskólans
Diplómanám í flutningafræðum við Opna háskólann í HR
Kristján M. Ólafsson hagverkfræðingur, rekstrarráðgjafi hjá Netspor og stundakennari við HR
Ísland í lykilhlutverki í samgönguneti framtíðar
Húni Heiðar Hallsson lögfræðingur og heimskautaréttarfræðingur

salur_vefur.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

f_vefur.jpg

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 13 - 16 af 115
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg