|
|
25. janúar 2012 |
Starfshópur innanríkisráðherra, sem ráðherra skipaði snemma á síðasta sumri um hvernig koma megi strandsiglingum á að nýju, skilaði ráðherra tillögum sínum í gær, 24. janúar 2012. Leggur hópurinn til að leitað verði tilboða í siglingarnar samkvæmt ákveðnum forsendum þar sem boðið verði í meðgjöf ríkisins. Miðað er við tilraunaverkefni til nokkurra ára og að því loknu standi siglingarnar undir sér.
Í frétt á vef Innanríkisráðuneytis segir að kannaður hafi verið áhugi flutningsaðila á strandflutningum svo og annarra kaupenda vöruflutninga. SVÞ vill undirstrika að ekki var leitað til samtakanna né áttu samtökin fulltrúa í starfshópnum, þrátt fyrir að samtökin hafa undirstrikað mikilvægi þess við ráðuneytið.
Innanríkisráðherra mun nú fara yfir tillögurnar og í framhaldinu kynna hugsanlegt útboð í ríkisstjórninni.
SVÞ hefur kallað eftir niðurstöðum starfshópsins og mun skoða niðurstöðurnar með hagsmunaaðilum um leið og þær berast.
Frétt innanríkisráðuneytis:
http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/27922
Eldri greinar á vef SVÞ:
http://www.svth.is/content/view/1240/84/
http://www.svth.is/content/view/218/72/
|
|
|
17. janúar 2012 |
Um nýliðin áramót voru rafræn ökuritakort hækkuð um 102 %, úr kr. 8700,- í kr. 17.650,- Þessi hækkun gekk í gegn án þess að vera tilkynnt hagsmunaaðilum með einum eða öðrum hætti.
Samtök atvinnulífsins, SVÞ - Samtök verslunar- og þjónustu, Samtök iðnaðarins og Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla þessum vinnubrögðum og telja að nauðsynlegt sé að hækkun umfram almennar verðlagshækkanir sem þessi sé boðuð með ákveðnum fyrirvara þar sem rök fyrir hækkun eru lögð fram og gjaldið skýrt nánar með niðurbroti þeirra þátta sem greitt er fyrir.
Ef litið er til nágrannalandanna þá er verð á ökuritakortum í Bretlandi kr. 7.280,- , Danmörk kr. 11.079.-, Þýskaland kr. 5.233,- og Spánn kr. 4.995,-. Holland hækkaði nýverið ökuritakortin úr kr. 11.079,- í kr. 17.410,-
Rafræn ökuritakort voru tekin í notkun í október árið 2006 og hefur verðið haldist óbreytt frá þeim tíma. Um mitt ár 2010 var boðuð um 100% hækkun en vegna þrýstings frá hagsmunaaðilum og þá starfandi Landflutningaráði var fallið frá hækkuninni.
Bréf framangreindra samtaka til Umferðarstofu.
|
|
|
13. janúar 2012 |
Fimmtudaginn 12. janúar 2012 var annar hópur nemanda í flutningafræði Opna háskólans í HR útskrifaður, alls 16 nemendur.
Að þessu sinni voru tveir nemendur með bestan námsárangur og voru veitt verðlaun, viðurkenningarskjal og gjafabréf að upphæð kr. 25.000,- í nafni flutningasviðs SVÞ. Þeir nemendur sem hlutu verðlaunin heita Vésteinn Viðarsson starfsmaður Íslandspósts og Halla Þorsteinsdóttir starfsmaður Eimskipa. Við óskum þeim til hamingju með afburða námsárangur.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
05. janúar 2012 |
Framlengt hefur verið ákvæði um breytingu á reglugerð um stærð og þyngd ökutækja nr. 155/2007. Ákvæðið var til 1. janúar 2012 og heimilaði heildarhæð vagns og gáms 4.40 metra vegna flutnings á háþekjugámum (gámur allt að 2.9 m að hæð). Framlenging hefur fengist til 1. janúar 2014.
SVÞ fór fram á það að ákvæðið yrði framlengt og þá til 1. janúar 2015 í ljósi þess að sömu forsendur liggja að baki nú og lágu að baki fyrri undanþágu. Tækjakostur flutningsfyrirtækja hefur ekki verið endurnýjaður að fullu enda aðstæður þannig í samfélaginu að lítið svigrúm hefur verið til endurnýjunar á tækjakosti.
Samtökin bentu á það í beiðni sinni að ekki er vitað til þess að umrædd undanþága hafi valdið neinum vandræðum þann tíma sem hún hefur verið í gildi enda er þess sérstaklega getið að ökumaður og flytjandi beri ábyrgð á því að fara þá leið þar sem mannvirki leyfa viðkomandi hæð.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 4 af 115 |