Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Ferðamannaverslun ársins 2011
13. janúar 2012

njararskjldur_2012_023.jpgNjarðarskjöldurinn og Freyjusómi
Þann 12. janúar sl. var Njarðarskjöldurinn afhentur þeirri verslun sem þykir skara fram úr hvað varðar þjónustu  við ferðamenn.  Afhendingin fór fram í Hörpunni að viðstöddu fjölmenni.  
Njarðarskjöldurinn , sem nú er veittur í sextánda  sinn, er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og  SVÞ – Samtak verslunar og þjónustu, Félag atvinnurekenda, Kaupmannasamtök Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free World Wide.  Markmið verðlaunanna er að hvetja til bættrar og aukinnar verslunarþjónustu við ferðamenn í Reykjavík.

Verslunin Aurum Bankastræti 4 sem hlaut Njarðarskjöldinn að þessu sinni var sett á laggirnar árið 1999 að Laugvegi 27 í Reykjavík. Eigandi verslunarinnar, Guðbjörg Ingvarsdóttir, hafði þá nýlokið gullsmíða- og hönnunarnámi í Kaupmannahöfn.



Lesa meira...
 
Jólaverslun svipuð og fyrir ári
13. janúar 2012

prosentutakn.jpgSamkvæmt mælingum Rannsóknaseturs verslunarinnar í jólamánuðinum jókst velta í dagvöruverslun um 0,4% á föstu verðlagi í desember miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 6,5% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í desember um 0,7% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 6,1% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Sala áfengis dróst saman um 0,9% í desember miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 2,6% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í desember 2,2% frá sama mánuði í fyrra.  Verð á áfengi var 3,5% hærra í desember síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.

Fréttatilkynning RSV.

 

Lesa meira...
 
Fréttatilkynning - kvörtun til ESA og umboðsmanns Alþingis
16. desember 2011
esa.pngSVÞ telja innflutningsbann stjórnvalda á fersku kjöti, mjólk og eggjum ganga gegn ákvæðum EES-samningsins
SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu sendu þann 6. desember sl. kvörtun á bæði umboðsmann Alþingis og Eftirlitsstofnun EFTA vegna innleiðingar íslenskra stjórnvalda á reglugerð ESB um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla.

Í október 2007 var tekin ákvörðun um innleiðingu reglugerðarinnar í EES-samninginn og á árunum 2008-2009 voru lögð fram lagafrumvörp vegna innleiðingar á umræddri reglugerð. Meðal þessa sem lagt var til var að innflutningur á vörum sem áður hafði verið óheimilaður (s.s. kjöt, mjólk og egg) yrði heimilaður í samræmi við heilbrigðiskröfur EES-löggjafar. Hins vegar náðu þessi frumvörp ekki fram ganga. Árið 2009 lagði núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fram nýtt frumvarp sama efnis þar sem þó var gerð sú breyting að ekki yrði aflétt framangreindu innflutningsbanni. Frumvarpið var síðar samþykkt án frekari breytinga hvað þetta varðar. Taldi ráðherra þetta bann fyllilega standast ákvæði EES-samningsins og kæmi til þess að eftirlitsaðilar eða aðrir dragi það í efa þá myndi því vera mætt af einurð.



Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 10 - 12 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg