Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Framkvćmdastjóri SVŢ talar á málstofu í Háskólanum á Bifröst
08. nóvember 2007

bifrost_logo.gifSigurður Jónsson framkvæmdastjóri SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu var gestur á málstofu í Háskólanum á Bifröst þriðjudaginn 30. október síðastliðinn. Í erindi sínu fjallaði Sigurður um þróun í þjónustuviðskiptum og þau tækifærin sem framundan eru. Hvatti hann nemendur til að velja verkefni sem tengdust þessari atvinnustarfsemi sem skapar flest ný störf í landinu og er mest áberandi í útrás atvinnulífsins til annarra landa.  Málstofur sem þessi eru haldnar vikulega á starfstíma Háskólans á Bifröst og er aðgangur að þeim öllum heimill auk þess sem allir nemendur skólans í fjarnámi geta fylgst með þeim á netinu.

 
Heilsuhúsiđ tekur áskorun SVŢ um ađ stuđla ađ auknu heilbrigđi neytenda
08. nóvember 2007
heisuhusid_logo.jpgHeilsuhúsið hefur sent SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu yfirlit yfir aðgerðir sem leiða eiga til aukinnar hollustu og heilbrigðis neytenda. Allar vörur Heilsuhússins eru lífrænt ræktaðar, sé þess kostur. Það á við í öllum vöruflokkum og er ætlunin að halda því áfram og auka vöruúrval. Heilsuhúsið leggur jafnframt áherslu á að innihaldsmerkingar séu góðar.
Lesa meira...
 
Sigurđur Jónsson, framkv.stj. SVŢ flutti erindi á ársfundi Eistonian Traders Association í Tallinn
08. nóvember 2007

sj_eistland.jpg Föstudaginn 2. nóvember sl. hélt Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri SVÞ erindi á ársfundi samtaka verslunarinnar í Eistlandi í höfuðborg landsins, Tallinn.  Erindi Sigurðar fjallaði um þróun verslunar í litlu landi, Íslandi, og þróunareinkenni í smásöluverslun.  Ársfundinn sátu rúmlega 100 fulltrúar aðildarfyrirtækja og annar erlendur gestafyrirlesari þar var írski öldungadeildarþingmaðurinn Feargal Quinn, en hann stofnaði Superquinn verslunarkeðjuna í Írlandi og rak hana þar til fyrir þremur árum þegar hann seldi hana.  Hann er nú jafnframt forseti EuroCommerce, Evrópusamtaka verslunarinnar. Erindi hans fjallaði um verslun á 21.öld.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 211 212 213 214 215 216 217 218 219 220 Nćsta > Endir >>

Úrslit 658 - 660 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg