Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Kjarasamningar að hefjast
08. nóvember 2007

sa_logo.gifSamtök atvinnulífsins, sem fara með kjarasamningagerð fyrir hönd aðildarsamtakanna, eru að undirbúa samninga við samtök launafólks, en flestir kjarasamningar renna út um næstu áramót eða fljótlega eftir þau.  Samtökin mynda baksveitir fyrir hina ýmsu kjarasamninga þar sem fulltrúar fyrirtækjanna sem í hlut eiga eru samningamönnum til halds og trausts um allt sem samningana varðar.  Það er mikilvægt að reynsla af gildandi samningum komi fram í þessu starfi svo og ábendingar aðila um það sem betur má fara.  Fyrirtæki og einstaklingar sem leitað hefur verið til um aðild að bakvarðarliðum hafa tekið því vel og undantekningarlaust tekist á hendur þessi verkefni.    SVÞ mun að sjálfsögðu ásamt SA gera grein fyrir þeim samningum sem nást á félagsfundum með þeim er málið varðar.

 
Markaðssetningin færist inn í verslanirnar
08. nóvember 2007

store_in_store.jpgStórir merkjavöruframleiðendur beina athygli sinni í ríkara mæli en áður að markaðssetningu inni í verslunum. Þeir telja að þar hafi þeir meiri áhrif á val neytenda en í gegnum fjölmiðlana. Samkvæmt Danska Handelsblad mun þessi þróun aukast verulega í Evrópu á komandi árum. Þessa fullyrðingu styrkir frásögn forsvarsmanna Procter & Gamble, einum stærsta aðilanum á þessum markaði, sem segja að um helmingur þeirra 450 milljarða króna sem nú er varið í auglýsingar verði ráðstafað í auglýsingar innan veggja verslana eftir 5 ár.

Lesa meira...
 
Árshátíð SÍA – Samband íslenskra auglýsingastofa
08. nóvember 2007

arshatid_sia.jpgÁrshátíð SÍA – Sambands íslenskra auglýsingastofa var haldin hátíðleg í Súlnasal á Hótel Sögu föstudaginn 2. nóvember sl. Þema hátíðarinnar þetta árið var útrásin og var mikið um dýrðir. Þar voru m.a. viðstaddir tveir starfsmenn SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu í góðu yfirlæti og skemmtu sér hið besta með starfsfólki fyrirtækjanna

 
<< Byrja < Fyrri 211 212 213 214 215 216 217 218 219 220 Næsta > Endir >>

Úrslit 655 - 657 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg