Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Jólaverslunin 2007
23. nóvember 2007
jolakulur.jpgBæklingurinn Jólaverslun 2007 var gefinn út þann 13. nóvember síðastliðinn af Rannsóknarsetri verslunarinnar. Hann er ætlaður stjórnendum verslana og annarra þjónustufyrirtækja til þess að auðvelda jólaundirbúninginn. Í honum er að finna áhugaverðar upplýsingar um jólaverslunina bæði til gagns og gamans. Bæklinginn má nálgast hér .

Rannsóknasetur verslunarinnar spáir því að vöxtur í jólaverslunin verði 9,4% miðað við síðustu jól á breytilegu verðlagi. Það jafngildir því að velta umfram meðaltal ársins verði um 14 milljarðar vegna jólanna eða um 45.500 kr. á hvert mannsbarn.

 
Smásöluvísitalan
23. nóvember 2007

prosentutakn.jpgVelta í dagvöruverslun jókst um 10,5% í október síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra á breytilegu verðlagi. Á milli mánaðanna september og október jókst velta dagvöruverslunar um 2,2%, sem felur í sér viðsnúning frá mánuðinum þar á undan þegar veltan minnkaði um rúmlega 9%. Verð á dagvöru hækkaði um 1% á milli mánaðanna samkvæmt verðmælingum Hagstofu Íslands. Aukning varð í veltu flestra annarra tegunda smásölu í október.

Nánar...  

 
Barmmerki
23. nóvember 2007
picture_in_merki_svth.doc.jpgSÞV – Samtök verslunar og þjónustu, Efling, ASÍ, VR og Alþjóðahús eru sameiginlega að vinna að útgáfu barmmerkja fyrir starfsfólk verslana, sem eiga reyna að sporna við fordómum í garð útlendra starfsmanna verslana hér á landi. Fyrr í haust var mikil umræða í fjölmiðlum um neikvætt viðmót sumra Íslendinga við starfsfólk sem er af erlendu bergi borið og vinnur í þjónustustörfum.   Í verstu tilfellunum gengu viðskiptavinir jafnvel út er þeir komust að því að starfsmaður verslunarinnar talaði ekki góða, eða alls enga íslensku.

Merkin verða tekin í notkun næstu daga og munu vonandi vekja athygli á þessu brýna málefni. Strax eftir áramót verður svo sett af stað auglýsingaherferð á vegum AUGA fyrir Mannréttindastofu þar sem verður tekið á mismunun fólks í samfélaginu.

 
<< Byrja < Fyrri 211 212 213 214 215 216 217 218 219 220 Nćsta > Endir >>

Úrslit 646 - 648 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg