Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Útskrift úr verslunarfagnámi hjá Símey
23. nóvember 2007
utskrift_simey.jpgFöstudaginn 23. nóvember síðastliðinn var fyrsta útskrift verslunarfagnámsins hjá Símey, að viðstaddri Sigríði Önnu Guðjónsdóttur, verkefnastjóra SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Athöfnin hófst klukkan 14:00 að Þórsstíg 4, í húsnæði Símey þar sem nemendur kynntu lokaverkefni sín. Því næst var haldið út á Árskógssand í kynnisferð um hina nýju bruggverksmiðju Kalda. Um kvöldið var svo glæsilegur kvöldverður á veitingastaðnum Halastjörnunni í Öxnadal þar sem nemendur voru jafnframt útskrifaðir. Tveir nemendur hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi og metnaðarfullt lokaverkefni og góðar framfarir í náminu. Það voru þau Sigurlaug Stefánsdóttir og Hlynur Kristjánsson sem hlutu viðurkenningarnar og óska SVÞ þeim innilega til hamingju með árangurinn.
 
Verslunarfagnám á vegum Símey
23. nóvember 2007
simey.jpgNú í janúar verður boðið upp á Verslunarfagnám á vegum Símey - Símenntunarstöðvar Eyjafjarðar í annað sinn. Fyrsti hópurinn útskrifaðist nú í nóvember og hefur verið almenn ánægja meðal þátttakenda og fyrirtækja með námið. Kennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er námið metið til 51. einingar á framhaldsskólastigi.


Lesa meira...
 
Jólagjöfin í ár
23. nóvember 2007
gps_taeki.jpgJólagjöfin í ár er GPS (Global Positioning System) staðsetningartæki. Þetta er niðurstaða sérskipaðar dómnefndar sem hafði úr fjölda hugmynda að velja. Valið byggir á því að hún falli vel að smekk breiðs hóps neytenda auk þess sem eftirtaldar þrjár forsendur voru hafðar til hliðsjónar;
- vara sem er vinsæl meðal neytenda
- vara sem selst vel
- vara sem fellur vel að tíðarandanum.
Íslendingar ferðast sem aldrei fyrr, hvort sem er akandi eða gangandi og kemur staðsetningartæki þá að góðum notum auk þess sem veiðimenn og langhlauparar hafa nýtt sér þessa tækni í ríkum mæli.

 
<< Byrja < Fyrri 211 212 213 214 215 216 217 218 219 220 Nćsta > Endir >>

Úrslit 643 - 645 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg