Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Toys ‘R’ Us opnar á Smáratorgi
23. nóvember 2007
toysrus.jpgLeikfangarisinn Toys ‘R’ Us opnaði fyrstu verslun sína á Íslandi þann 18. október síðastliðinn. Opnunin sló heimsmet í sögu fyrirtækisins og aðra helgina var búðin önnur söluhæsta búðin í heiminum á eftir versluninni í Hong Kong þrátt fyrir gífurlegan mun á fólksfjölda segir Guðrún Kristín hjá Toys ‘R’ Us Smáratogi. Hún segir jafnframt að í upphafi var gert ráð fyrir 6 starfsmönnum í versluninni en þeir eru nú þegar orðnir 25 og nóg að gera.

Búðin hefur verið söluhæsta búðin á Norðurlöndunum á hverjum degi frá opnun hennar en engar tölur berast frá Bandaríkjunum né annars staðar frá nema um sölumet sé að ræða.

 
Afhjúpun álnastiku og upplýsingaskjaldar á Ţingvöllum
23. nóvember 2007
alnastika.jpgSVÞ – Samtök verslunar og þjónustu og Neytendastofa í samstarfi við Landsbanka Íslands og Þingvallanefnd hafa unnið saman að því að setja upp við Þingvallakirkju upplýsingaskjöld og álnastiku, sambærilega þeirri er notuð var til mælinga hér áður fyrr. Næstkomandi laugardag, þann 1. desember klukkan 13.00 verður athöfn við Þingvallakirkju þar sem upplýsingaskjöldurinn og álnastikan verða afhjúpuð. Þetta er gert til að minnast þess að í ár eru liðin 90 ár frá setningu fyrstu laga um löggildingarstofu á Íslandi.


Lesa meira...
 
Verslunarfagnám hjá Mími símenntun hefst 12. janúar 2008
23. nóvember 2007
mimir_logo.jpgNámið er fyrir starfandi verslunarfólk sem sinnir almennum störfum í verslunum. Því er ætlað að auka verslunarfærni og efla almenna og persónulega færni starfsfólks til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í nútímaverslun.
Verslunarfagnám er starfstengt þriggja anna nám sem fer fram bæði í skóla og á vinnustað. Námið er í heild sinni 680 klukkustundir og skiptist jafnt á milli skóla og vinnustaðar. Upphafslotan mun verða helgina 12. og 13. janúar 2008.  Lota 1 mun svo hefjast í beinu framhaldi þann 15. janúar og standa til 15. apríl 2008.

 
<< Byrja < Fyrri 211 212 213 214 215 216 217 218 219 220 Nćsta > Endir >>

Úrslit 640 - 642 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg