|
26. nóvember 2007 |
Starfsmenn sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sama fyrirtæki og eru við störf í fyrirtækinu síðustu viku í nóvember eða í fyrstu viku desember skulu eigi síðar en 15. desember fá greidda sérstaka eingreiðslu, desemberuppbót, sem er kr. 41.800 hjá flestum starfsgreinum nema verslunarmönnum, en þar hefur uppbótin verið ákveðin kr. 47.400. Láti starfsmaður af störfum á árinu getur hann átt rétt til greiðslu desemberuppbótar við starfslok, hlutfallslegrar miðað við starfstíma.
|