Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Aukið frelsi í viðskiptum mikilvægt
16. janúar 2012
frjls_verslun_des._2011_-_vital_vi_am.jpgViðtal við Andrés Magnússon framkvæmdastjóra SVÞ í 11. tbl. Frjálsrar verslunar
Meðal þess sem kemur fram í viðtalinu er að samtökin hafa á haustmánuðum unnið að greiningu á vörugjaldskerfinu en verslunin, eins og margar aðrar atvinnugreinar, hefur lengi haft horn í síðu þessa skatts fyrir það hversu flókinn, ósanngjarn og óskilvirkur hann er. Samtökin munu þess vegna á nýju ári leggja sérstaka áherslu á það við stjórnvöld að hafinn verði undirbúningur að því að afnema vörugjöldin af öllum almennum vörum.
Lesa meira...
 
Virkjum fólk til verka - átak hefst 15. febrúar
16. janúar 2012
sa_logo.gifSA, fyrir hönd sinna aðildarfélaga, þ.m.t.  SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu, skrifuðu undir yfirlýsingu aðila vinnumarkaðarins og fulltrúa stjórnvalda þann 16. desember 2011  um átak gegn atvinnuleysi.  Markmiðið er að tryggja 1500 atvinnuleitendum vinnu eða starfstengd úrræði og byggir framkvæmdin á því að nýta betur úrræði Vinnumálstofnunar m.a. á sviði reynsluráðninga og starfsþjálfunar. Mismunandi skilyrði eru sett eftir því hvert form ráðningar er en sem dæmi  má nefna að þegar fyrirtæki ráða starfsmann til reynslu með stuðningi Vinnumálastofnunnar fær fyrirtækið sem svarar til atvinnuleysisbóta í allt að sex mánuði en skuldbindur sig til að ráða viðkomandi til jafnlangs tíma til viðbótar.  
Lesa meira...
 
Útskrift úr flutningafræði Opna Háskóla HR
13. janúar 2012
flutninganm_007_f._vef.jpgFimmtudaginn 12. janúar 2012 var annar hópur nemanda í flutningafræði Opna háskólans í HR útskrifaður, alls 16 nemendur.

Að þessu sinni voru tveir nemendur með  bestan námsárangur og voru veitt verðlaun, viðurkenningarskjal og gjafabréf að upphæð kr. 25.000,-  í nafni flutningasviðs SVÞ.  Þeir nemendur sem hlutu verðlaunin heita Vésteinn Viðarsson starfsmaður Íslandspósts og Halla Þorsteinsdóttir starfsmaður Eimskipa. Við óskum þeim til hamingju með afburða námsárangur.


Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 7 - 9 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg