Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
VERSLUNIN ER EKKI Í STRÍÐI VIÐ BÆNDUR
30. september 2011

svn.jpg.....en vill aukið frelsi og gagnrýnir of dýrt landbúnaðarkerfi

Ef fram fer sem horfir er ljóst að komandi misseri geta orðið mjög erfið fyrir verslun í landinu. Í dag má skipta neytendum í þrjá álíka stóra hópa: Þá sem komast vel af, þá sem skrimta og þá sem ná ekki endum saman. Það er því ljóst að um hver mánaðamót fer fram barátta um þær krónur sem eru afgangs þegar fjölskyldur landsins eru búnar að borga afborganir og vexti, skatta, tryggingar og kaupa í matinn. Hjá mörgum er afar lítið ef nokkuð eftir og það stendur annarri verslun í landinu verulega fyrir þrifum. Hagsmunagæsla fyrir verslunina felst m.a. í því að fjölga þessum afgangskrónum með lækkun skatta, lægri skuldabyrði og lægra matarverði og færa þá neyslu yfir í aðrar greinar verslunar og þjónustu.

Lesa meira...
 
Gjaldtaka Þjóðskrár Íslands vegna aðgangs að upplýsingum úr þjóðskrá
29. september 2011
skjaldarmerki.jpgAthygli SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu, sem gæta m.a. hagsmuna fyrir sjálfstætt starfandi heilbrigðisfyrirtæki, hefur verið vakin á gjaldtöku Þjóðskrár Íslands vegna aðgangs þessara aðila að upplýsingum úr þjóðskrá og boðaða endurskoðun á samningum þess eðlis. Samkvæmt upplýsingum SVÞ virðast víða vera misbrestir á framkvæmd umræddrar gjaldtöku fyrir aðgang að þjóðskrá. Á það jafnt við almennt um aðgang sjálfstætt starfandi lækna að þjóðskrá sem og hugsanlega mismunum þeirra á milli. Einnig kann að eiga sér stað mismunun milli sjálfstætt starfandi lækna og opinberra aðila.

Lesa meira...
 
Opinber innkaup – víða pottur brotinn?
29. september 2011
rikiskaup.gifÍ kjölfarið á því að Ríkisendurskoðun birti álit sitt á framkvæmd innkaupa lögreglustofnana fyrr í þessari viku beindi SVÞ því til Ríkiskaupa að fá upplýsingar um hvernig brugðist verði við. Að mati samtakanna vekur þetta mál upp áleitnar spurningar um það hvernig innkaupum opinberra stofnana almennt er háttað og hvernig eftirliti er sinnt með því að þær virði samnings- og lagaskyldur sínar. Í öllu falli leiðir þetta mál hugann að því hvort ekki kunni víðar að vera pottur brotinn innan opinberra stofnana en hjá þeim embættum sem hér um ræðir.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Endir >>

Úrslit 31 - 33 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg