Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Ísland - Allt áriđ
21. október 2011
sland_-_allt_ri_-_undirskrift_10.10.2011_vefur.jpgÞann 10. október sl. var skrifað undir samstarfsverkefnið Ísland - Allt árið við hátíðlega athöfn í Hörpunni.  Samhliða undirskrift var verkefninu formlega ýtt úr vör og þá kynnti Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra haustátak verkefnisins sem mun standa fram að áramótum. Í þessum fyrsta fasa verkefnisins eru landsmenn hvattir til að bjóða ferðamönnum heim og nú þegar hefur fjöldi heimboða verið birtur á vef átaksins  www.inspiredbyiceland.com .

Umfjöllun í erlendum fjölmiðlum  hefur verið umfangsmikil og jákvæð en í þessum fyrsta fasa verkefnisins, október og nóvember, eru birtar auglýsingar hér heima, í Amsterdam, London, París og Seattle.  Verkefnið mun standa yfir næstu þrjú árin og á þeim tíma er ætlunin að fjölga erlendum ferðamennum utan háannar um 12% á ári og þá að auka verslun erlendra ferðamanna þannig að endurgreiðsla af vsk til ferðamanna utan háannar fari úr 560 milljónum í 800 milljónir á tímabilinu.  

Lesa meira...
 
Hvar liggja mörkin í skattheimtu? Áhrif á fólk og fyrirtćki
17. október 2011

fundur_um_skattaml.pngFöstudaginn 21. október efna Deloitte, Samtök fjárfesta, NASDAQ OMX Iceland (Kauphöllin) og Samtök atvinnulífsins til opins morgunverðarfundar um skattamál. Hvar liggja mörkin í skattheimtu? Áhrif á fólk og fyrirtæki er yfirskrift fundarins.

Frummælendur eru  Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland, Guðmundur Thorlacius Ragnarsson, lögfræðingur hjá Arion banka og Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte.


Lesa meira...
 
Aukin velta í verslunum í september
14. október 2011

prosentutakn.jpgÍ fréttatilkynningu Rannsóknaseturs verslunarinnar um mælingar í septembermánuði kemur fram að velta í dagvöruverslun jókst um 3,2% á föstu verðlagi í september miðað við sama mánuð í fyrra og um 8,6% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í september um 1,6% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 5,3% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Sala áfengis jókst um 6,7% í september miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 10,1% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í september 0,3% frá sama mánuði í fyrra.  Verð á áfengi var 3,2%3,1% hærra í september síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.

Fréttatilkynning frá RSV.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 28 - 30 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg