Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Ţá skal ég hundur heita – á íslensku
07. nóvember 2011
slenski_fjrhundurinn.jpgBlaðagrein eftir Lárus M.K. Ólafsson lögfræðing SVÞ, birt í Morgunblaðinu 5. nóv. sl.

Með reglugerð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis um notkun og markaðssetningu fóðurs var tekin upp hér á landi samsvarandi reglugerð ESB. Markmið reglugerðarinnar er m.a. að samræma skilyrði fyrir setningu fóðurs á Evrópska efnahagssvæðinu og að veita notendum og neytendum fullnægjandi upplýsingar. Markmiðið eitt og sér er gott og göfugt en svo virðist sem innleiðing hennar og framkvæmd af hálfu stjórnvalda standist illa samanburð við vandaða stjórnsýsluhætti. Áhrif reglugerðarinnar er að gerð er sú ófrávíkjanlega krafa að merkingar alls fóðurs skulu vera á íslensku hvort sem fóður er ætlað dýrum sem alin eru til matvælaframleiðslu eða gæludýrum. Kröfur um merkingar á fóðri eru ekki nýjar af nálinni en núgildandi kröfur ganga mun lengra í þessum efnum heldur en áður þekktist.

Lesa meira...
 
Gengistrygging fjármögnunarsamninga ólögleg
21. október 2011

hstirttur_slands_hs.jpgHæstiréttur kvað í gær upp stefnumarkandi úrskurð um gengistryggingu fjármögnunarsamninga. Samkvæmt úrskurði Hæstaréttar eru fjármögnunarleigusamningar í raun og veru lán og því væri gengistrygging slíkra gerninga ólögleg.

Ljóst er að þessi niðurstaða mun leysa úr mikilli óvissu fyrir mjög marga atvinnurekendur sem hafa verðið í óvissu með réttarstöðu sína að þessu leyti allt frá hruni. Fjölmargir félagsmenn SVÞ hafa beðið eftir niðurstöðu í þessu máli í ofvæni, ekki síst þeir félagsmenn samtakanna sem eru innan Landssambands vörubifreiðaeigenda, en mjög margir í slíkum atvinnurekstri höfðu tekið lán sambærilegt því sem var til úrlausnar í þessu máli.

Lesa meira...
 
Greining á íslenskum lyfjamarkađi
21. október 2011
lyf_ii.jpgUndanfarna mánuði hefur farið fram vinna við greiningu á íslenskum lyfjamarkaði og starfsumhverfi lyfjamála almennt. Um er að ræða samstarfsverkefni SVÞ, Frumtaka og Félags atvinnurekenda.

Markmið þessarar greiningarvinnu var að daga saman á einn stað það sem allir hagsmunaaðilar, bæði í einka- og opinbera geiranum vilja breyta og/eða halda óbreyttu í lyfjaumhverfi hér á landi. Þarna hafa öll sjónarmið verið tekin saman og sett fram með eins greinagóðum hætti og unnt er. Eins og ljóst má vera koma í þessu skjali fram sjónarmið sem jafnvel ganga þvert á hagsmuni annarra enda lá það fyrir þegar ráðist var í þessa vinnu að svo myndi verða.
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 25 - 27 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg