Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Samkeppnisréttarnámskeið
08. nóvember 2011
logos_lgmannsjnusta.jpgSVÞ og LOGOS hafa ákveðið að standa fyrir samkeppnisréttarnámskeiðum fyrir  aðildarfyrirtæki SVÞ. Tilgangur og markmið samkeppnisréttarnámskeiða er að minnka hættu á brotum á samkeppnislögum og þeim skaðvænlegu afleiðingum  sem slík brot geta haft í för með sér.

Tímasetning og staðsetning námskeiðanna verður ákveðin í samstarfi við stjórnendur fyrirtækjanna. Sameiginlegt námskeið fyrir minni fyrirtæki verður einnig haldið í húsakynnum SVÞ ef áhugi reynist nægjanlegur.
Lesa meira...
 
Norrænn skjaladagur
08. nóvember 2011

skjaladagur_dagskr_1.jpgVerslun og viðskipti er yfirskrift norræna skjaladagsins nk., laugardag 12. nóvember
Norræni skjaladagurinn verður haldinn hátíðlegur hjá Þjóðskjalasafni og mörgum héraðsskjalasöfnum landsins á laugardaginn kemur, 12. nóvember. Opinber skjalasöfn á Norðurlöndum sameinuðust árið 2001 um þennan árlega kynningardag, annan laugardag í nóvember. Í ár er viðfangsefni dagsins verslun og viðskipti. Markmiðið er að vekja athygli og áhuga á rannsóknum á verslunar- og hagsögu, beina athygli að heimildum sem koma að gagni við slíkar rannsóknir og þeim skjalasöfnum sem varðveita þau gögn.

Dagskrá skjaladagsins.

Lesa meira...
 
Efling verslunar í dreifbýli
08. nóvember 2011

logo_rsv_m_hb.jpgHaldin var fjölþjóðleg ráðstefna þar sem fjallað varum úrræði til að efla litlar verslanir á landsbyggðinni á Húsavík 8. nóvember sl. Á ráðstefnunni voru kynntar niðurstöður þriggja ára samstarfsverkefnis um málefni dreifbýlisverslana sjö þjóða á norðurslóðum (Íslands, Finnlands, Noregs, Færeyja, Norður-Írlands, Írlands og Skotlands). Rannsóknasetur verslunarinnar er umsjónaraðili verkefnisins hér á landi.

Tilgangur verkefnisins er að greina hvaða stuðningsaðgerðir koma sér best fyrir þessar verslanir, ekki síst á vegum sveitarstjórna og annarra stjórnvalda, og koma á fót varanlegri þjónustu til að styðja við litlar verslanir og er verkefninu ætlað að styrkja og efla hæfni þessara aðila til að reka verslanir í dreifbýli.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 22 - 24 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg