Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Jólaverslun og jólagjöfin í ár
22. nóvember 2011

jlaverslun_og_jlagjf_2011_-_forsa.jpg Rannsóknasetur verslunarinnar hefur gefið út árlega spá um jólaverslunina og valin hefur verið „Jólagjöfin í ár“ af sérskipaðri dómnefnd. Helstu niðurstöður eru eftirtaldar:

•    Spáð er að jólaverslunin aukist um 2,5% frá síðasta ári. Leiðrétt fyrir verðhækkunum er spáð samdrætti um 2% að raunvirði.

•    Áætlað er að heildarvelta smásöluverslana í nóvember og desember verði tæplega 60 milljarðar króna án virðisaukaskatts.

•    Ætla má að hver Íslendingur verji að meðaltali um 38.000 kr. til innkaupa sem rekja má til jólahaldsins.

•    Jólagjöfin í ár er:  „Spjaldtölva“

Lesa meira...
 
Vísbendingar um ađ einkaneysla sé ađ taka viđ sér
15. nóvember 2011

prosentutakn.jpgSamkvæmt tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar dróst velta í dagvöruverslun saman um 1,9% á föstu verðlagi í október miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 2,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta dagvöruverslana í október saman um 0,1% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 4,8% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Vegna villu í innsendum gögnum var velta í fata- og skóverslun vanmetin í smásöluvísitölunni í fyrstu frétt. Hið rétta er að fataverslun dróst saman um 0,2% í október miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en ekki 20% eins og áður var sagt.



Lesa meira...
 
Greining hagsmunaađila á lyfjamarkađi
08. nóvember 2011

greining_hagsmuna__slenskum_lyfjamarkai_-_september_2011.jpg Þann 7. nóvember afhentu Félag atvinnurekenda, Frumtök og SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra skýrslu með greiningu hagsmuna á íslenskum lyfjamarkaði sem þessir hagsmunaaðilar hafa gert og snýr einkum að þáttum tengdum innflutningi, dreifingu, framleiðslu og smásölu lyfja.

Með greiningunni vilja hagsmunaaðilarnir draga fram ýmsa þætti sem þeir telja nauðsynlegt að breyta til að auka samkeppni og skilvirkni og bæta starfsumhverfi þeirra sem starfa á lyfjamarkaðinum.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 19 - 21 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg