Skip to content

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Þú ert hérna: Forsíða
Greiðsluþátttaka í lyfjakostnaði
25. nóvember 2011
pillur.jpgFyrir þinginu liggur nú frumvarp til breytinga á lögum um sjúkratryggingar sem gerir ráð fyrir breytingum á greiðsluþátttöku almennings í lyfjakostnaði. Lyfsalahópur SVÞ er í meginatriðum sammála þeim breytingum sem að er stefnt, en gagnrýna þó mjög hvernig leysa á vanda þess þjóðfélagshóps sem minnst hefur milli handanna. Gert er ráð fyrir því að öllum verði gert að fjármagna upphafskostnað sinn vegna lyfjakaupa, þar til tilteknu lágmarki er náð. 

Frumvarpið gerir ráð fyrir að bjóða fólki upp á greiðsludreifingu til að kljúfa þennan kostnað. Í frumvarpinu er hins vegar ekkert um það að finna hvernig slík greiðsludreifing er hugsuð, þe. hver á að fjármagna þann kostnað sem af slíku fyrirkomulagi hlýst eða sjá um framkvæmdina að öðru leyti.
Lesa meira...
 
Skýrsla um vörugjaldskerfið
25. nóvember 2011
svth-logo-nytt_03_-_2010.jpgSVÞ hefur að undanförnu unnið að gerð skýrslu um vörugjaldskerfið, en vörugjöld hafa verið hluti af skattkerfi landsins í fjörutíu ár, eða síðan Ísland gekk í EFTA. Skýrsla þessi er unnin í samstarfi við fjármálaráðuneytið. Vörugjald er svo sem kunnugt er lagt á ýmsar vörur við innflutning og við innanlandsframleiðslu. Vörugjöld eru reiknuð með tvenns konar hætti, annars vegar tiltekin fjárhæð fyrir hvert kílógramm eða hvern lítra af gjaldskyldri vöru (magngjald) og hins vegar sem tiltekið hlutfall af verðmæti gjaldskyldrar vöru (verðgjald) .

Lesa meira...
 
Athugasemdir SVÞ varðandi fyrirhugaðan fjársýsluskatt
25. nóvember 2011
skjaldarmerki.jpgHjá efnahags- og skattanefnd Alþingis er nú til umfjöllunar frumvarp fjármálaráðherra um svokallaðan fjársýsluskatt. Samkvæmt frumvarpinu ber skattskyldum aðilum frumvarpsins að greiða sérstakan fjársýsluskatt af öllum tegundum launa eða þóknana fyrir starf hverju nafni sem það nefnist eins og nánar er útfært í frumvarpinu. Fjársýsluskattur er samkvæmt frumvarpinu 10,5% af nánar tilgreindum skattstofni.

SVÞ hafa gert athugasemdir varðandi umrætt frumvarp enda telja samtökin frumvarpið í óbreyttri mynd vega verulega að hagsmunum aðildarfélaga SVÞ.

Umsögnin í heild sinni.
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 16 - 18 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVÞ




Þjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg