Skip to content

SVŢ - Samtök verslunar og ţjónustu

Increase font size Decrease font size Default font size
Ţú ert hérna: Forsíđa
Ađgerđaáćtlun um tóbaksvarnir – forsjárhyggja af verstu gerđ
16. desember 2011
skjaldarmerki.jpgSVÞ og Samtök atvinnulífsins hafa skilað til Alþingis viðamikilli umsögn um tillögu til þingsályktunar um tóbaksvarnir sem lögð hefur verið fram í annað sinn.

Samtökin lýsa í umsögn sinni mjög alvarlegum athugasemdum við tillöguna, en með henni er lagt til að fela velferðarráðherra að vinna 10 ára aðgerðaáætlun um tóbaksvarnir þar sem lagt er til að sala á tóbaki verði takmörkuð við apótek. Að lokinni aðlögun yrði tóbak einungis selt í apótekum gegn framvísun tóbaksseðils frá heilbrigðisstarfsmanni.

Lesa meira...
 
Yfirlýsing um ađgerđir gegn langtímatvinnuleysi
16. desember 2011

sa_logo.gifSVÞ – Samtök verslunar og þjónustu vilja vekja athygli á frétt á vef Samtaka atvinnulífsins. Undanfarnar vikur hafa SA, í samstarfi við sín aðildarsamtök, undirbúið  þátttöku í átakinu „Til vinnu“.  Átakið felur í sér tillögur um öflugar aðgerðir sem eiga að tryggja allt að 1.500 atvinnuleitendum starfstengd úrræði og verður sérstök áhersla lögð á hvata og úrræði fyrir langtímaatvinnulausa. Átakið er til þriggja ára og verður hrint af stað þegar í byrjun árs 2012.   

Sjá frétt á vef SA.

Lesa meira...
 
Vöxtur í raftćkjaverslun – samdráttur í fataverslun
15. desember 2011
prosentutakn.jpgÍ tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar kemur fram að velta í dagvöruverslun jókst um 0,4% á föstu verðlagi í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 5,1% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í nóvember um 0,3% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 4,6% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Sala áfengis jókst um 1,7% í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 5,5% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í nóvember 1,6% frá sama mánuði í fyrra.  Verð á áfengi var 3,8% hærra í nóvember síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.

Fataverslun dróst saman um 1,4% í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 0,8% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta fataverslunar í nóvember saman um 4,1% frá sama mánuði árið áður. Verð á fötum hækkaði um 0,7% frá sama mánuði fyrir ári.  

Fréttatilkynning RSV.
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 13 - 15 af 818
Ökuskólar
sssk_banner.png
Ökuskólar

Fréttapóstur SVŢ




Ţjónusta


bkarkpa_-_str.jpg
 

Saga verslunar á Íslandi

 

saga_verslunarlitil.jpg