Endurnýjun kjarasamninga milli SA og ASÍ - stöðugleikasáttmáli

Í gær var undirritaður nýr kjarasamningur á milli SA og ASÍ og í framhaldi af því stöðugleikasáttmáli á milli aðila vinnumarkaðarins, ríkisstjórnarinnar, sveitarfélaga o.fl. Eins og lesa má í fjölmiðlum var það ekki auðveldur leikur að fá alla þessa aðila til að koma að þessu máli - en aðilum bar á endanum gæfu til að snúa bökum saman og sameinast í þessu miklvæga máli.
SVÞ tók þátt í þessari vinnu í Karphúsinu og studdi SA heilshugar og komu atvinnurekendur fram sem mjög samhentur hópur í þessari samningalotu. Þó ber sérstaklega að hrósa Vilhjálmi Egilssyni framkvæmdastjóra SA og Gylfa Arnbjörnssyni formanni ASÍ fyrir þeirra þátt í þessum samningum en SA og ASÍ stóðu mjög þétt saman um að draga úr fyrirhuguðum skattahækkunum á samningstímanum en gera þeim mun meiri kröfur á hið opinbera að draga úr ríkisútgjöldum.
Lesa meira...